Jaeja, fyrsti dagurinn i "vinnunni" buinn og eg vildi svo sannarlega ad teir yrdu ekki fleiri... Tessi born geta verid alveg vangefid leidinleg, tau eru svo illa spillt ad mig langar helst ad fara grata! (Eg sem helt ad min systkini vaeru spillt og otekk)
Dagurinn byrjadi a tvi ad eg gaf bornunum morgunmat og tad var sko ekkert grin, enginn vildi tad sama :( Sa elsti vildi ekki neitt, ein vildi eggjakoku, hin vildi fa eggjakoku med osti og skinku, svo tessi 8 ara, sem er frekar feitur, hann vildi fa kleinuhring og kokusneid... eg helt nu ekki!! Ekki alveg retta leidin til ad byrja daginn... ta fekk eg bara ad heyra "mamma var buin ad leyfa mer tad" tannig eg hringdi i modirina og drengurinn var ekki ad ljuga, hann matti svo sannarlega fa kleinuhring og kokusneid i morgunmat :)
Matsedill dagsins hja greyid drengnum var:
kleinuhringur og litil kokusneid i morgunmat- ostasnakk, franskar og sprite i hadegismat- stor kokusneid tegar vid komum heim ur sundi og svo hamborgari og kok i kvoldmat... eldri stelpan a afmaeli i dag svo fjolskyldan for einnig eftir matinn og fekk ser is. Sa verdur aldeilis stor og sterkur :) Nei, vitidi hvad.. eg get ekki horft uppa tetta. Tetta gerir lidan min enn verri en hun er! Bornin eru oskrandi a hvert annad allan daginn, tau eru reyndar betri tegar foreldrarnir eru ekki heima. Gud minn godur hvad mig langar ad koma heim!!!!!!!
Seinustu tvo kvold hef eg farid ut ad hlaupa, tad er gedveikt ad hlaupa i tessum hita, madur svitnar all svakalega og mer lidur dasamlega eftira :) Eg verd ad koma tessum hlaupum inni rutinuna hja mer...Eg hef miklar ahyggjur af tvi ad eigi eftir ad baeta a mig to nokkrum kiloum, midad vid hvernig tessi fjolskylda bordar:/ Eg er haett ad drekka kok (rett'upp hend sem truir tvi?) tad er allt odruvisi en heima og alveg virkilega vont... Fae mer bara vatn i stadinn :)
Hitinn herna er alveg rosalegur, 101 farenheit... vill einhver segja mer hvad tad er i celsius??? Kann nefninlega ekki ad reikna tad ut. Svo er tad einmitt annad sem madur tarf ad adlagast, metrakerfid og tad allt er odruvisi...
Jaeja, tad er farid ad rjuka ur eyrunum a mer og eg er farin ad pikka ansi fast a takkabordid af reidi, eg held ad tad se best ad eg fari ad sofa nuna!!!
Eg er ekki komin med internet i herbergid mitt ennta, og er ekkert alltof viss um ad eg eigi eftir ad fa tad, nett pirrud..
En eg er komin med nyjan sima, sem tau letu mig hafa. Nr. er: 313-460-7011.
Eg set tad sem skilyrdi ad eg verdi ad fa internet, annars fer eg heim !!!
tangad til naest...
Ykkar Birta.
P.S. til hamingju med daginn, Gamli !!!
17.7.06
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
10 comments:
Ég sé þennan dreng alveg fyrir mér. Hann hlýtur að líta út eins og honum hafi verið hellt í fötin sín og það hafi gleymst að segja stopp.
101 farenheit eru 101-32/9x5=38,3 eða bara 38°C.
Og þú getur gert ljómandi góða ommilettu í örbylgjunni á 20sec þarf ekki einu sinni olíu þannig að þú fitnar ekki um gramm ef þú vilt það ekki.
Shitt ertu ekki að grínast, hvernig er hægt að leifa börnunum sínum að borða svona á morgnana!!!! manni verður bara óglatt við tilhugsunina :S Birta ég veit eitt gott ráð bara snúa barninu við og gefa honum smá smell á rassinn, og gefa honum svo bara Kellogg´s Special K. Og svo er fólk að velta fyrir sér þarna afhverju þau eru svona feit... Hrikalegt
æji krúttið mitt, það er alltaf erfitt fyrstu dagana þegar þú þekkir ekki fólkið og ert að læra inná þau.. þetta á eftir að skána fljótlega, i promise :*
love you
haha þett hljómar svo amerískt donuts í morgunmat vá! díses glötuð börn bara að taka þau í gegn og slá þau á bossann...reyndu að láta þér líða betur!!:) ég og halla opnum hvítvín þér til heiðurs (já ég:) í kvöld er að fara til hennar austur..
Þú lætur þetta ekkert hafa áhrif á þig kona þú bara breytir þessu smátt og smátt,Þú verður líka að passa hvað þú segir stelpa þau gætu fengið sér túlk.Númer eitt að vera jákvæður og brosa.
Shitt litla krúttið mitt!! eru ekki byssur á öllum heimilum þarna.. djók!
kv. Ingunn
Æji elsku Birta mín, mér verður nú hugsað til fyrsta dagsins í vinnunni minni í Tyskalandi!!!
Ég týndi börnununm í ca. klst., þurfti að hringja í mömmuna og segja henni að ég hefði týnt börnunum því ég var að tala við kærastann minn í síma og skildi ekki hvað þeir voru að segja og bað þá alltaf að bíða aðeins, en svo kom í ljós að þeir voru bara að reyna að segja mér að þeir ætluðu yfir í næsta hús, ég fann þá sveitt klst. seinna, búin að hlaupa út á leikskóla og allt í kring og villast og hvað eina.
En ekki er allt búið enn, nokkrum dögum seinna, þegar ég var búin að vera í viku, þá tóku þeir sig til og gríttu eplum af trjánum í húsið að utan, og ekkert eitt eða tvö epli, nei örugglega 25 og það voru svona brún "splashh" för út um allan hvítan vegginn á húsinu, þá gafst ég upp, hringdi grátandi í mömmu sem var stödd á Bolungarvík og sagðist koma heim "Á MORGUN" og lokaði mig svo grátandi inni í eldhúsi þar til konan kom heim úr vinnunni!!!
En þetta lagaðist síðan smátt og smátt sem betur fer og ég lifði af árið.
En það sem ég var mest gáttuð á eftir "eplagrítinginn" var að þau urðu ekkert svo reið, nei nei, það er ekkert mál að mála bara vegginn!!! Hefði maður ekki aðeins tekið í hnakkadrambið og skammað smá? Ó jú ég held það nú, alla vega á Íslandi!
En Birta mín, gaman að fylgjast með þér og vertu endilega duglega að skrifa.
Kveðja, Hófí frænka
Elsku Birta !
Ég rambaði inn á síðuna þína í gegnum silju síðu - vona að það sé í lagi :)
Mig langaði bara að segja að ég öfunda þig - já öfunda !! Það sem þú ert að gera núna er eitt af því sem ég ætlaði alltaf að gera en gerði aldrei - sé alveg stundum eftir því sko !! Og þó ég hafi ekki verið þarna og skilji ekki alveg þá get ég ímyndað mér og mín ráðlegging til þín er sú að ÞÚ verður að ákveða hvernig þú vilt hafa ykkar samband þ.e.a.s. þitt og barnanna. Og það eiginlega hefur ekkert með foreldrana að gera - þetta er bara eins og með kennarana! Þú verður fyrst að vera svolítið hörð og setja þeim ÞÍNAR reglur í bland við heimilisreglurnar og svo getur þú farið að slaka aðeins á. Þau eiga eftir að virða þig miklu meira á eftir - annars reyna þau og reyna eins lengi og þú þolir ! Ég allavega gerði þetta með einn frænda minn sem var alltaf að reyna að komast lengra og lengra með mig og ég bara setti mín mörk gagnvart honum - og það kom mömmu hans ekkert við - þetta var milli mín og hans, okkar samband, og þegar hann er með mér þá vil ég hafa hluti svona og svona - ég er eldri og ég ræð og heima hjá mér eru þessar reglur !!Hljómar harkalega en eftir þetta þá er aldrei neitt vesen - ég get slakað meira á en samt haldið mínum mörkum og fyrir vikið virðum við hvort annað mikið meira :D
Elsku Birta - gangi þér alveg rosalega vel !! Þú ert rosalega dugleg og þessi reynsla mun gera þig sterkari og sjálfstæðari og ef það er hægt, miklu flottari ;)
Ég vona að það hafi verið í lagi hjá mér að blaðra þetta - og kannski vonandi hjálpar það e-ð ??
Með kærri kveðju,
Þóra - Silju vinkona ;)
p.s. hvernig slappstu út úr skápnum ?? Fór alveg fram hjá okkur Gunnari - tíhíhíhí ;)
Takk fyrir radin Thora min:) tetta er svo sannarlega rett sem tu ert ad segja... eg reyni mitt besta en tad getur verid svo erfitt tegar madur veit hvad madur vill segja en veit ekki hvernig madur a ad koma tvi fra ser tannig ad tau skilji mann! Hef ekki oft lent i tvi ad turfa ad aga born a ensku:)
En skapurinn ja, tid bara gleymid alltaf laesa...Sorry!!!
hehehe ;) við þurfum greinilega að athuga þetta betur með lásinn - það er ekki hægt að missa svona sæta og flotta stelpu út .....hmmm ... á móti kemur að það er væri nú bara hrein eigingirni að halda þér :-D hehehe ;)
Gangi þér rosa vel og hafðu það ofsa gott ;*
Post a Comment