20.7.06

HVAD ER AD MER ???

Ok, tetta er allt saman ad skana... eg fer samt ekki ofan af tvi ad eg er virkilega daudvona af heimtra :( Tad sem hefur gert mer lifid lettara herna er ad eg hef kynnst annari au pair stelpu sem er islensk, hun byr bara sex gotum fra mer! Hun heitir Bergdis, er einu ari eldri og er mjog hress og skemmtileg. Hun er buin ad vera herna i taept ar og fer heim eftir manud. Tannig ad hun tekkir allt herna alveg ut og inn og er ad koma mer inn i allt saman... Hun og vinkonur hennar eru ad fara a djammid um helgina og taer budu mer med tannig loksins hefur madur eitthvad til ad hlakka til :)

Og svo koma slaemu frettirnar... seinustu tvo daga hef eg varla getad sofid. Fyrsta daginn minn med krokkunum (man) forum vid i sund og eg brenndist adeins a oxlum og andliti. Axlabruninn er alveg horfinn en eg versna og versna i andlitinu.. er farin ad halda ad tetta se eithvad mikid meira en bara bruni :( Eg er ekkert bolgin, en er raud og hudin er mjog skringileg vidkomu..svolitid eins og hrudur eda eitthvad. Svo er tad versta ad mig svidur oendalega mikid og eg er farin ad finna fyrir doda/dofa i andlitinu. Gaeti eg verid med solarofnaemi eda ofnaemi fyrir solarvorninni sem eg notadi? Eg notadi ekki somu vorn og krakkarnir, en su sem EG notadi er utrunnin i tokkabot! (tekkadi a tvi adan.) Eg for i apotekid nuna kvold og spudist fyrir tar og tau letu mig hafa antihistamine ofnaemistoflur og hydrocortisone krem til ad bera a tetta... konunni sem eg taladi vid tar fannst liklegt ad tetta vaeri ofnaemi en fyrir hverju vissi hun ekki, henni fannst tetta med dodan frekar skritid:/ sagdi ad eg tyrfti ad leita til laeknis liklega.

Tannig ad eg er ekki bara ad deyja ur heimtra, heldur lika ur einhverjum otekktum sjukdomi sem heldur fyrir mer sarsaukafullri voku a nottunni, sem gerir tad ad verkum ad eg er alvarlega pirrud og krakkarnir fa sko alveg ad finna fyrir tvi... :/HJALP!!!! Tid truid ekki hvad tetta er vont... snokt snokt :(

Er einhver med laeknisvit tarna uti sem getur svarad tessum spurningum minum????

7 comments:

Anonymous said...

æ það er annað hvort allt eða ekkert..:( en þetta er ábyggilega bara bruni í andlitinu, það getur líst sér sem svona skyndiofnæmi (svo líklega ertu með ofnæmi fyrir sólinni:( )
annars er ég ekki sérfræðingur ...:) frábært að það sé önnur ísl þarna en týpiskt að hún sé að fara, annars go crazy á djamminu:)

Anonymous said...

Jæja elskan þetta byrjar allt svona svakalega vel hjá þér, það er ekkert skrítið að þú sért smá smeik við þetta og færð heimþrá. Þetta verður allanvega ekki verra þannig að þú getur glatt þig með því ;) ég get lofað þér því að eigin reynslu þá á þetta eftir að skána allt saman. Mín dvöl byrjaði á því að lenda hjá brjaluðu fólki, ég skipti um fjölskyldu stuttu seinna fékk ég hótunar bréf frá fjölskyldunni, ég varð ellt af hákarli (og þá héltég að mín síðasta stund væri runnin upp) einhver ógeðsleg padda ákvað að finna sér samastað inni náranum á mér, einhver fiskur stakk mig í rassinn og svo ekki síst þá brenndist ég líka á augnlokunum og maganum þannig að ég gat ekki opnað augun í 2 daga. Þrátt fyrir þetta allt saman þá var þetta án efa skemmtilegasta ár sem ég hef upplifað;) So TRUST me þú átt eftir að byrja njóta þess eftir smá, þú þarft bara smá tíma til að komast inní allt saman. Og Birta passaðu þig á djamminu það eiga allir strákar eftir að missa andlitið þegar þeir sjá svona mikla skutlu frá Íslandi. STÓRT KNÚS Miss You baby

Anonymous said...

Elsku besta litla frænka!
Ég var svo mikið að hugsa til þín í gærkvöldi eftir að ég las þetta allt saman hjá þér og ég fór að rifja mína dvöl upp þá get ég líka sagt þér frá einu atviki.
Eftir vikuna þegar ég ætlaði að gefast upp, ákvað konan að biðja móðir sína að astoða mig í hádeginu næstu 2 vikur á meðan þetta var allt að þróast, strákarnir að kinnast mér og svona og það gekk vel. Svo eftir þessar 2 vikur fór fjölskyldan öll í 3ja vikna ferð til Túnis og ég var skilin eftir ein heima (mjög sniðugt). En ég var lánuð til vinarfjölskyldu á meðan en svaf ein heima í 3 hæða húsi, skíthrædd og myrkfælin.
En fór með út á flugvöll sem var í 3ja klst keyrslu og átti að taka bílinn svo til baka. Já já allt í lagi með það, NEMA AÐ ÉG VILTIST Á LEIÐINNI HEIM :O( Ég fór óvart frárein inn í Karlsrue sem er 200.000 manna bær í staðinn fyrir að halda áfram framhjá og það er ekkert grín að taka vitlausa rein af hraðbraut. Svo hringsólaði ég kl hálf ellefu um kvöld í rigningu og myrkri, mállaus og ekki einu sinni með símanúmer sem ég gat hringt í í ca. klst., farin að hágráta, kalla á mömmu, biðja bænirnar mínar og allt þar til ég rambaði á lögreglustöð og gekk þar inn með grátstafinn í kverkunum og spurði hvort lögreglan talaði ensku og sem betur fer gerði hann það og gat vísað mér veginn og ég komst heil á húfi.
En þetta var vitaskuld "oplevelse" sem ég er ekkert endilega til í að upplifa aftur.
En vona nú samt að þetta fari að snúast til betri vegar hjá þér. Þú ert svo dugleg.
Kærar kveðjur, Hófí frænka :o)

Anonymous said...

Hæ hó Birta Hlíf
Vona að ástandið batni sem fyrst hjá þér. Þetta ár á eftir að vera töluvert lærdómsríkt fyrir þig - á allan hátt.
En með þessi útbrot þá þekkjum við það. Fengum mjög svipað og þú lýsir og töluðum við íslenskan lækni í Connecticut sem sagði þetta vera poison ivy eða Poison oak og gæti hafa komið úr einhverri gróðurtegund án þess að maður taki eftir því eða finni fyrir því. Við fengum ofnæmistöflur (man ekki nafn en þær voru án lyfseðils og eru MJÖG slævandi) og áburðinn sem þú ert með svo ef þú notar hann þá ættir þú að vera í góðum málum fljótlega (þ.e.a.s. ef þetta er sama dæmið).
Vona að þér batni sem fyrst og hafðu það ofsalega gott úti.

Kv.
Bryndís Alexandersd.

Birta Hlíf said...

Takk fyrir radin Bryndis.. gaman ad tu skyldir kikja a siduna:) ja og til hamingju med stulkuna!!

Anonymous said...

Jæja Birta mín hættu nú þessi væli og bíttu bara á jaxlinn þetta á allt eftir að lagast. Ég hef því miður enga svona krassandi reynslusögu eins og hinir en ég veit bara að þetta á eftir að lagast þú ert svo ægilega dugleg ;o)

Kv. Andri Dagur Bróðir

Anonymous said...

hæ kjútí pæið mitt!! takk fyrir kveðjuna í gær!!!!! ég fór bara vestur á ættarmót bara bóngó blíða og fínheit.. en passaðu þig á sólinni heppin samt að vera ekki rauðhærð.. hehe eða óheppin :D
kv. Ingunn tuttuguogeins :S