22.8.06

Tíðindi frá Detroit!!!

Halló halló halló kæru vinir!!!
Hvað er títt? Hvernig var Menningarnóttin... eitthvað djúsí slúður? Koma svo, leyfið mér að vera með... Þó svo að ég sé búin að yfirgefa klakann þarf ég enn á slúðrinu að halda!!!!
Kíkti einhver til Olivers vinar míns á laugardaginn (gvuuð hvað ég sakna hans mikið!!) frétti af hressasta bandi landsins, JAGÚAR, spilandi þar fyrir ykkur djammþyrstu íslendingana....
Hefði sko alveg viljað kíkja... þeir eru nebbla soldið sætir þessir Jagúarstrákar ;)

Menningarnóttin mín var svolítið frábrugðin þeirri íslensku.. en ég fór á Tigers baseball-leik með Au pair samtökunum, hafði einu sinni áður farið á baseball með familíunni og guð minn góður hvað þetta er ekki skemmtileg íþrótt.. allavega ekki svona til að horfa á. Fyrir mér var eins og það væri bara alltaf upphitun, hugsaði stöðugt: ætlar þessi helv.. leikur ekki að fara byrja!!! Það gerðist nákvæmlega ekki neitt og ekki fræðilegur möguleiki á að skilja stigagjöfina. Og ofan á þetta allt saman voru leikirnir í rúma 3 tíma sem er kannski full mikið þar sem ég á í erfiðleikum með að sitja heilan fótboltaleik, og það er leikur sem ég skil.. eða svona næstum því:)

En ég fór nú einungis á leikinn á laugardaginn til að hitta hinar au pair stelpurnar og reyna eitthvað að kynnast þeim, búið að vera doldið einmannalegt síðan hún Bergdís yfirgaf svæðið í seinustu viku :(
Markmiðinu var náð, ég kynntist nokkrum stelpum!!!
Kíkti með þremur súperhressum stelpum á djammið eftir leikinn, down town Detroit og drottinn minn dýri hvað var gaman... von mín um rosalegt djamm varð að engu eftir monopolykvöldið mikla um versló! En sem betur fer hef ég hitt jafnoka mína í djammbransanum... svo kæru vinir ég er farin að brosa á ný :)

Margt skemmtilegt gerðist þetta kvöld... byrjaði allt á að ein af stelpunum fékk sent 'candy-floss' frá einhverjum gúmmítöffara sem sat rétt hjá okkur, frekar fyndið og þar sem hún Sondra er svo rosalega kurteis þá fór hún til hans og þakkaði fyrir sig.. sem var enn fyndnara:) kom þá í ljós að þarna var á ferð 10-15 ungir karlmenn að steggja tvo meðlimi hópsins sem var vinahópur úr menntaskóla... þetta var rosa mikið eins og í bíómyndunum :)
En kauði var alveg æstur í hana Sondru sætu og vildi endilega fá hana með sér á einhvern bar en hún hélt við fyrri plön og fórum við á skemmtistað sem heitir State... mjög heitur staður og Dee sem er líka ein af mínum nýju vinkonum:) er rosagóð "vinkona" gaursins sem sér um staðinn... þannig Birta litla bara beinustuleið í VIP og þurfti ekki að borga 10 dollarana sem kostaði inn! pretty nice!!!! Og ég er að tala um að þessi "vinur" hennar smellti bara fingrum og það þýddi að okkur vantaði drykk og barþjónarnir komu á tíunúlleinni.. þetta var roooosalegt!!
Eftir einn hring á barnum skunduðum við á dansgólfið og ég legg ekki meira á ykkur, Bachelorpartýið var mætt á svæðið og fór hamförum á dansgólfinu, ærlega voru þeir að sletta úr klaufunum drengirnir!!! Ekki annað hægt að segja en að þeir voru svaka hressir ;)
En allavega þá var þetta kvöld hið skemmtilegasta... mikið hlegið, mikið dansað og alveg nóg drukkið!!! Fyrir nánari upplýsingar, hringið í mömmu ;)
Maður er stundum svolítið smeikur á dansgólfinu.. mjög auðvelt að lenda í Bitch-fight á stöðum sem nánast allir eru svartir á hörund. Svörtu stelpurnar eru ekkert svaka hressar með að við "hvíta ruslið" séum að dansa við þeirra menn!!! Soldið eins og í bíómyndunum líka:)

Hey, eruði búin að taka eftir því að ég er að nota ÍSLENSKA stafi ????
...og vil ég nota tækifærið og þakka honum Daða mínum fyrir hjálpina með það vesen, án hans væri ekki svona gaman að lesa þetta meil :)

Fyrir ykkur sem viljið vita það, þá er Bluntarinn með tónleika í Detroit 19. október... minns er svo að fara :) Gaman Gaman!!!

Ég var inn í bókabúð hérna í hverfinu um daginn og rakst þar á Napoleon Dynamite spil, mjög áhugavert að vita hvernig það spil virkar híhí.. einnig var hægt að kaupa handritið af myndinni í kilju ;) Þannig að þið eruð æst í að setja myndina á svið, (sem væri örugglega skemmtilegast ever) látið mig bara vita og ég redda málunum... er kannski hægt að fá þetta heima???

Diskódívur.... þið eruð ekki að standa ykkur í blogg-geðveikinni! Hver er skýring ykkar á þessu?

Er skólageðveikin ekki svo að fara byrja hjá ykkur lömbin mín???

Hildur, hvenær ferðu til Kína? Og Mæja pæja, hvenær ferð þú til Sviss? Er ekki að fara koma að þessu???

Myndavélin mín er í þessum skrifuðu orðum á leiðinni til mín í póstinum, var eitthvað lasin þessi elska!... þannig að innan tíðar fer maður að hlaða inn myndum... af mér og aukakílóunum sem hafa verið að vingast við mig seinustu 6 vikur:) jibbí!!
Af hverju valdi ég land HAMBORGARARASSANA..... afhverju????

Elskurnar mínar... verið nú dugleg að blogga, commenta og senda mér meil.. það er svo mikið gaman, þykir svo vænt um það!!!
Ég er ekki enn komin með internetið í mína tölvu... er alveg að gefast upp á þessu! ...en vera jákvæð Birta mín og bjartsýn.. það er voða gott svona af og til:)

Ef þið eruð búin að gleyma: birtah@hotmail.com

Later!

18 comments:

Anonymous said...

Frábært að heyra að þú sért loksins búin að hitta jafnoka þína í djamminu:) Kominn tími á það.. En já maður hefur aldeilis fengið að finna fyrir svörtum kvennmannsrössum á dansgólfinu.. og minn fer að von bráðar að vera jafn stór!! :/ Hehe.. En verðum í bandi.. og halda áfram að skemmta sér og vera bjartsýn!

Anonymous said...

Jæja Birta mín það er bara allt að gerast... alltaf gaman að lesa svona færslur og heyra að það sé eitthvað skemmtielgt að gerast hjá þér;) ég heyri í þér soon elskan take care

Anonymous said...

ég fer í næstu viku :( það var geggjað á menninganótt kom heim 8 um morguninn og ellisif og ég getum sagt þér ýmislegt skemmtilegt! en fórum ekki til hans ólivers því miður...allavegana þá vona ég að ég hitti þig á msn bráðum svo var ég líka að fá nýja tölvumyndavél með svona micrafoni eða eitthvað svo við getum spjallað um au pair lífið saman:) heyrumst sem fyrst sætust og passaðu þig á þessum blackbitches!!

Birta Hlíf said...

hlakka til að heyra í þér Mæja mín... vona bara að ég fá netið bráðum í mína þá getum við spjallað endalaust saman :)
Og já til hamingju með afmælið á laugardaginn músin mín.. hvernig gat ég gleymt???

Anonymous said...

Gott er að þú sért búin að komast á ekta djamm í ameríkunni :) og búin að kynnast því hve yndislegt er að vera hérna... Bíddu bara bráðum verðurðu komin með einn kana uppá arminn :þ Þeir eru allavega aðeins kurteisari en þessir íslensku vikingar okkar! :)
Bestu kveðjur úr Atlanta, Georgia

Anonymous said...

Ingunn: í rigningunni í Rvk. Gaman að heyra Brightness ég sé fyrir mér að þú sért í einhverju grease umhverfi þar sem þú ert sandy.. en gerðu eitt fyrir mig, reyndu að komast í eitthvað dance workshop þarna úti svo þú getir verið með kennslu þegar þú kemur heim :D

Anonymous said...

hahaha gat verið að Ingunn bað um danssporin, en þetta hljómar bara nokkuð gott þarna hjá þér stelpa!
Ég og Ingunn fórum edrú á oliver á föstudaginn, helvíti gaman...vil einnig segja þér að þetta var mitt fyrsta skipti þarna inn ---takk fyrir og góðan daginn!!!!
Jæja lítið að frétta af fiskifýlulandi og brennivíni þessa dagana, þannig ég læt þetta duga í bili :)
Langaði bara að kvitta, maður er farinn að kíka doldið hérna inn.. :)
blelli

Anonymous said...

já þá er það komið á hreint...fólkið frá sviss hringdi í mig í fyrrakvöld (viku áður en ég átti að flytja út) og sagði við mig "VIÐ ERUM AÐ FOKKING FLYTJA HEIM" s.s árið mitt og öll ferðalögin sem ég er búin að plana er orðið að engu ég sit föst á glataða íslandi og já er atvinnulaus!! s.s engir skype fundir :(

Anonymous said...

Hæ Birta mín, reyndi að hringja í þig en það svaraði bara einhver karlmaður hmmm, reyni að hringja aftur í dag. lov jú þín mamma.

Birta Hlíf said...

Það er skemmtileg saga á bak við það mamma mín:) en ég fæ ekki símann minn fyrr en í kvöld! Þú getur reynt að hringja í heimasímann!!!

Anonymous said...

Liggjum hérna uppí rúmi heima hjá Ellisif og hökkum í okkur snakk... og María búin að dæla í okkur öllu nýjasta slúðrinu svo við séum örugglega inn í helstu málunum :)
Við söknum þín sæta... Vonum að kvöldið þitt verði ánægjulegt! :o)
Kveðja,
Ellisif, Halla, Jenný og María

Birta Hlíf said...

Stelpur mínar, kvöldið var æði.. úfff!!!

Anonymous said...

HAHAHA SNILLD!!
sko við viljum fá detailin geturu ekki sent hópmeil á okkur:) fokking snilld:o)

Anonymous said...

Rugl

Anonymous said...

Birta hvað er að gerast maður er alltaf að reyna að ná í þig en það kemur alltaf einsog þú sért utan þjónustusvæðis ????
Við þurfum virkilega að tala við þig
kv DiskoDivurnar

Birta Hlíf said...

ég týndi símanum mínum... þannig að ég lokaði honum! En svo fékk ég hann aftur og ég á bara eftir að opna hann aftur!!! þið getið alltaf hringt í heimasímann: 3138230601

Anonymous said...

Á ekkert að fara að skrifa eitthvað meira?

Anonymous said...

Birta mín ég er komin með fréttir.......

Myndir frá eyjum komnar inn ;) a woooohúúú......
diskodivur.myphotoalbum.com