8.9.06

ER SPRELLLIFANDI !!!

Afsakið þetta svakalega blogg-leysi sem hefur verið ríkjandi hér seinustu misseri... maður má bara ekkert vera að þessu rugli, það er svo mikið um að vera hjá manni ;) eða þannig sko...
Einhverjir eru víst orðnir hræddir um að ég sé ekki tengd umheiminum!!!

En ég er semsagt alveg sprelllifandi og er farin að líka bara ágætlega vel við mig hérna í úglöndum. Maður er alltaf að hitta nýtt og nýtt fólk, komin með þessa líka ágætis summu af vinum, alveg allra þjóða kvikindi :) Einhverja hluta vegna er ítalskt fólk í miklu uppáhaldi hjá mér þessa dagana! Skil þetta ekki alveg... en ég hugsa að það sé bara af því að mér finnst spaghetti svo gott;) tíhíhí

Ég er búin að vera að standa mig vel á djamminu seinustu helgar... alltaf eitthvað um að vera! Fyrsta helgin í september er svokölluð ´Laborday weekend´ sem er löng helgi því að mánudagurinn er svo frídagur.
Á föstudeginum fór ég með öllum stelpunum á ´The beach grill´ sem er svaka skemmtilegur staður...
Á laugardeginum hitti ég Jóa & Krissa, íslensku vini mína og kærustu Krissa, í Royal Oak og tókum við smá snúning á dansgólfi þar í bæ... svaka stuð.
Svo á sunnudeginum fór ég ásamt henni Dee í heimapartý sem var líka svona svaka hresst og skemmtilegt:)
Á mánudeginum (Laborday) var ég bara róleg og naut þess að vera í fríi....

Málið með þennan ´Laborday´er að þá er síðasti séns fyrir þig að klæðast hvítu... það þykir ekki viðeigandi að vera í hvítum fötum eftir þann dag, þvílíkt rugl!!! Líklegt að ég láti þessa klikkuðu Ameríkana ráða hverju ég klæðist!! Pufffff......

Ég er búin að fá myndavélina mína loksins.... vúhúú!!! Þannig að ég þarf að vera dugleg að taka myndir og skella því á myndasíðuna. Sjáum til hvernig það heppnast!

Krakkarnir mínir byrjuðu í skólanum á þriðjudaginn og hef ég ekkert annað en gott um það að segja;) það er frekar hljótt í húsinu þar sem ég er bara með litlu músina hana Kate, rosa notalegt! Allt annað líf.

Þessi vika var frekar fljót að líða, einungis 4 vinnudagar... trúi ekki að ég sé strax komin í helgarfrí!!! Þetta er æði ;) Eftir hálftíma eða svo fer ég að ´pæja mig upp´ og svo er mæting til Dee kl. 8PM í smá drykkju áður en við málum bæinn rauðan:) Ætla að vera megaskutla í nýja kjólnum mínum... sem er svo hættulega flottur. Úfffff....

Það var svo margt sem ég ætlaði að segja ykkur í þessari færslu en ég get svo svarið það að ég er búin að gleyma öllu.... er alveg tóm;( líklega svo yfir mig spennt fyrir kvöldinu..
Segi ykkur góða sögu eftir helgi... lofa!!!!

Þangað til..

Bleeee....

8 comments:

Anonymous said...

sjiit hvað er gott að heyra að þú ert lifandi geitin mín ;)
ég get ekki beðið eftir að sjá myndir!
Ég er að fara út á þriðjudaginn til China og ætla líka að vera dugleg að blogga og setja inn myndir, læt þig vita um leið og síðan verður til.
vertu svo sjálf dugleg að blogga..
love you (knús)

Anonymous said...

Hellú honey!! jamm ég var svona farin að pæla hvort þú værir bara dáinn þarna í Detroit. En mér líkar það að þér sé farið að líka lífið í Ameríku.
En ég heimta meiri dugnað í blogginu!!!
Verðum í bandi..
Halta svo bara áfram á þessari braut...
Kveðja Berglind

she said...

Gott að heyra hvað allt gengur betur Birta mín!!!
Verð að fá að sjá hættulega flotta kjólinn þinn, bíð spennt eftir að þú dælir inn myndum á myndasíðuna ;)

P.s. er að fara á eftir í afmæli til Arons Breka í hammara & köku :)

Anonymous said...

Birta mín setja myndir inn á síðuna NÚNA langar að sjá hvort að þú hafir nokkuð mikið breyst þarna í Ameríkunni og passaðu að missa þig ekki alveg í djamminu þarna það geta verið svo mikið af dlæpamönnum. mamms

Anonymous said...

hæ pæjulingur, snilld hvað er gaman hjá þér meira djamm á þér en á íslandi bara heyrist mér, er hérna í frakklandi í steik hita enn þá, geggjað flott borg fer til parís næstu helgi og svo heim aftur...vertu dugleg að blogga !!
hafðu það gott sæta:)

Anonymous said...

FJÚFF! Þessar myndir eru rosalegar! Talandi um að vaða í myndarlegum Ítölum :)
Þú ert alltaf jafn sæt Birta mín! -og kjóllinn... við skulum ekki einu sinni ræða hann :)
Take care honey!!!

Anonymous said...

sælar, hvernig væri að setja myndir af fjölskyldunni inn á síðuna svona fyrir okkur. Langar að sjá nýju fjölskylduna.mammmmmms

Anonymous said...

hættulegur kjóll það er rétt!! og ái heitur fabio á ferð:D alltaf laaang flottust!!